Adalat

Nífedipín Kalsíumgangalokar Bayer Schering Pharma Lyfseðilsskylt B

Adalat tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn háðar kalsíumflæði inn í frumuna. Áhrifa kalsíumblokkara gætir því mest hjá frumum með lítið kalsíum, þ.e. vöðvafrumum í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist aðallega að æðum eða hjarta. Virka efnið nífedipín hefur fyrst og fremst æðavíkkandi áhrif. Lyfið víkkar bæði kransæðar og slagæðar, blóðþrýstingur lækkar og blóðflæði til hjartavöðva eykst. Adalat er notað við háþrýstingi og hjartaöng.

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Notkun á lyfi

Töflur til inntöku. 30-60 mg á dag. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Við háþrýstingi: 20 mín eftir inntöku. 4-8 klst. eftir stakan skammt; 8 klst. eftir stöðuga notkun. Greipaldinsafi getur minnkað útskilnað nífedipíns úr líkamanum. Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Einkenni sjúkdóms geta versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Án vandkvæða.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með einhverja meltingarkvilla
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
Nokkur hætta er á því að lyfið hafi áhrif á fóstur. Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Lyfið er ekki ætlað börnum. Minni skammtar eru oft notaðir. Lyfið getur valdið svima og þar með haft áhrif á aksturshæfni. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur. Áfengi getur haft óæskileg áhrif á blóðþrýsting og hjartsláttarhraða. Æskilegt er að halda áfengisneyslu í lágmarki meðan lyfið er tekið. Leyft við æfingar og í keppni.

Aukaverkanir

Flestar aukaverkanir lyfsins eru skammtaháðar, þ.e. meira áberandi við stærri skammta, og byggjast á æðavíkkandi áhrifum þess. Þessar aukaverkanir eru tíðari í upphafi meðferðar en mildast með tímanum.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Hjartsláttarónot
Bjúgur í ökklum
Hægðatregða
Höfuðverkur, svimi, þróttleysi
Ógleði, meltingaróþægindi
Roði í andliti
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir
Hjartsláttartruflanir, hraður hjartsláttur
Verkur fyrir brjósti, mæði
Þvagtregða

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Milliverkanir

Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni lyfsins. Ginkgo getur aukið líkur á aukaverkunum lyfsins.

Má ekki nota með

Cardizem, Cardizem Retard, Rimactan

Getur haft áhrif á

Advagraf, Alprazolam Mylan, Arzotilol, Atenolol Mylan, Atenólól Actavis (afskráð sept. 2011), Azarga, Bicalutamid Actavis, Bicalutamide Portfarma, Candizol, Confortid, Cosopt, Dépakine (afskráð apr. 2012), Diflucan, Dorzolamide/Timolol Portfarma, DuoTrav, Ery-Max, Fenantoin Recip, Fenemal Recip, Fluconazole Portfarma, Flúoxetín Actavis, Fontex, Fotil, Fotil forte, Fungoral, Ganfort, Indometacin Actavis, Klacid, Lanoxin, Lanoxin mite, Latanoprost/Timolol Portfarma, Logimax, Logimax forte, Metoprolol Actavis, Metoprolol Mylan, Miacalcic Nasal, Optimol, Orfiril, Orfiril Retard, Pranolol, Prograf, Propranolol Mylan (afskráð okt. 2011), Seloken, Seloken ZOC, Seról (afskráð feb. 2011), Sotalol Mylan, Sporanox, Tafil, Tafil Retard, Tegretol, Tegretol retard, Timosan Depot, Trandate, Trileptal, Viskén, Xalcom

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.