Píóglítazón
Sykursýkilyf
Takeda
Lyfseðilsskylt
*
Actos inniheldur virka efnið píóglítazón og er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, eða insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, eða insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og þarf að vera til staðar í líkamanum til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Píóglítazón er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er annaðhvort notað eitt sér eða með öðrum sykursýkilyfjum til inntöku (metformíni eða súlfónýlúrea sykursýkilyfjum) þegar hæstu þolanlegir skammtar þeirra nægja ekki til þess að stjórna blóðsykri. Metformín er virka efnið í Glucophage. Skráð súlfónýlúrealyf hér á landi eru glíbenklamíð (Daonil), glípízíð (Mindiab), glíklazíð (Diamicron) og glímepíríd (Amaryl, Glimeryl). Píóglítazón dregur úr insúlínviðnámi. Svo virðist sem lyfið örvi viðtaka á yfirborði lifrar-, fitu- og vöðvafrumna í stoðkerfinu og frumurnar verði næmari fyrir insúlíni. Við þetta aukast áhrif insúlíns á líkamsvefina og úr blóðsykurshækkun dregur. Meðferð með píóglítazóni hindrar líka glúkósulosun frá lifur og eykur nýtingu hennar þegar um er að ræða aukið insúlínviðnám. Píóglítazón ætti ekki að nota eitt lyfja og lyfið má ekki gefa með insúlíni.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu
Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.
Milliverkanir
Píóglítazón má ekki gefa með insúlíni. Samhliða gjöf píóglítazóns og bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID-lyfja) getur aukið hættu á bjúgmyndun. Náttúrulyfið Jóhannesarjurt getur haft áhrif á virkni lyfsins.
Getur haft áhrif á
Advagraf, Amaryl, Apidra, Arthrotec, Arthrotec Forte, Atacand Plus, Candpress Comp, Cozaar Comp, Cozaar Comp Forte, Darazíð, Dehydratin neo, Diklofenak Merck NM, Diovan Comp, Glimeryl, Klófen-L, Logimax, Logimax forte, Lopress Comp, Metoprolol Actavis, Metoprolol Mylan, MicardisPlus, Miloride, Miloride Mite, Modifenac, Presmin Combo, Prograf, Rasilez HCT, Seloken, Seloken ZOC, Topimax, Topiramat Actavis, Topiramate Portfarma, Valpress Comp, Voltaren, Voltaren Dolo, Voltaren Rapid, Vóstar-R, Vóstar-S