Upplýsingar um lyfið
Actos

Actos inniheldur virka efnið píóglítazón og er við sykursýki. Sykursýki stafar af skorti á insúlíni (tegund I, eða insúlínháð sykursýki) eða minnkuðum áhrifum þess (tegund II, eða insúlínóháð sykursýki). Insúlín er hormón sem myndast í briskirtli og þarf að vera til staðar í líkamanum til þess að sykur í blóði komist inn í frumur þar sem hann nýtist sem orkugjafi. Píóglítazón er notað við sykursýki af tegund II, en hefur ekki áhrif á insúlínháða sykursýki. Það er annaðhvort notað eitt sér eða með öðrum sykursýkilyfjum til inntöku (metformíni eða súlfónýlúrea sykursýkilyfjum) þegar hæstu þolanlegir skammtar þeirra nægja ekki til þess að stjórna blóðsykri. Metformín er virka efnið í Glucophage. Skráð súlfónýlúrealyf hér á landi eru glíbenklamíð (Daonil), glípízíð (Mindiab), glíklazíð (Diamicron) og glímepíríd (Amaryl, Glimeryl). Píóglítazón dregur úr insúlínviðnámi. Svo virðist sem lyfið örvi viðtaka á yfirborði lifrar-, fitu- og vöðvafrumna í stoðkerfinu og frumurnar verði næmari fyrir insúlíni. Við þetta aukast áhrif insúlíns á líkamsvefina og úr blóðsykurshækkun dregur. Meðferð með píóglítazóni hindrar líka glúkósulosun frá lifur og eykur nýtingu hennar þegar um er að ræða aukið insúlínviðnám. Píóglítazón ætti ekki að nota eitt lyfja og lyfið má ekki gefa með insúlíni.

Notkun á lyfi
Lyfjaform:

Töflur til inntöku.

15-45 mg einu sinni á dag. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.

Um 30 mín. Hámarksblóðþéttni næst 2 klst. eftir inntöku.

Um 24 klst. eftir stakan skammt.

Breytt mataræði og minnkuð sykurneysla er þáttur í meðferð.

Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Sykursýki getur versnað þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Hafðu samband við lækni í öllum tilfellum. Ef sjúklingur missir meðvitund skal leita neyðarhjálpar þegar í stað.

Mælt er með því að fylgst sé reglulega með lifrarensímum sjúklinga sem eru meðhöndlaðir með píóglítazóni. Reynsla af notkun píóglítazóns í klínískum rannsóknum er ennþá stutt og enn hefur ekki verið sýnt fram á langtímaávinning af meðferð með lyfinu.

Aukaverkanir
Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svimi
Kvefeinkenni
Liðverkir
Minnkað húðskyn
Uppþemba
Þyngdaraukning
Blóðleysi
Sjóntruflanir
Gula

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Upplýsingar
Sykursýkilyf
Takeda
Virkt innihaldsefni: Píóglítazón
Skráð: 1.12.2000
Útlit
A-hlið B-hlið
Litur: Hvítur Hvítur
Áletrun: 15 ACTOS
Mynd:
Gerð: Tafla Lengd: 0mm
Lögun: Hringlaga Breidd: 0mm
Kúpt Þvermál: 7mm
Deilistrik: Þykkt: 3mm
Styrkur: 15 mg
Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með hjartasjúkdóm eða hafir fengið hjartabilun
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:

Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:

Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:

Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára.

Eldra fólk:

Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:

Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni en ef merki eru um of lágan blóðsykur ætti ekki að stjórna ökutæki.

Áfengi:

Getur valdið lækkun á blóðsykri. Einkenni um lækkaðan blóðsykur líkjast að sumu leyti áhrifum áfengis, en það minnkar líkur á því að einkennin þekkist og að rétt sé brugðist við þeim. Sjúklingar sem nota lyfið ættu því ekki að neyta áfengis.

Íþróttir:

Leyft við æfingar og í keppni.