Activelle

Estradíól, Noretísterón Kvenhormón Novo Nordisk Lyfseðilsskylt E

Activelle inniheldur tvö virk efni, estradíól og noretísterón. Estradíól er hormón sem líkaminn framleiðir. Við tíðahvörf minnkar framleiðsla hormónanna, estradíóls og prógesteróns, og því fylgja ýmis óþægindi. Meðferð með Activelle miðar að því að vega upp hormónaskortinn og slá á einkenni af völdum tíðahvarfa. Hormónameðferð eftir tíðahvörf minnkar einnig líkur á beinþynningu þar sem estradíól stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina. Lyfið er því líka gefið konum sem hætta er á að fái beinþynningu að tíðahvörfum loknum. Noretísterón er samtengt hormón með sömu áhrif í líkamanum og kvenhormónið prógesterón. Hér er það gefið með estradíóli allan tímann sem meðferð varir til að hindra ofvöxt í slímhimnu legsins. Lyfið viðheldur hins vegar ekki reglulegum tíðablæðingum.

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Notkun á lyfi

Töflur til inntöku. 1 tafla á dag, helst alltaf á sama tíma dags. Töflurnar takist inn með vatnsglasi. Hver tafla inniheldur 1 mg estradíól og 0,5 mg noretísterón. Áhrif koma fram á fyrsta mánuði meðferðar og einkenni hormónaskorts hverfa á nokkrum vikum eða mánuðum. Um 1 sólarhringur eftir stakan skammt. Engin. Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef fleiri en 36 klst. líða frá síðasta skammti skaltu sleppa þeim sem gleymdist og taka næstu töflu á réttum tíma. Ekki taka tvær töflur í einu. Hætta skal töku lyfsins í samráði við lækni Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Án vandkvæða, en ráðlegt er að fara reglulega í eftirlit hjá lækni. Nánar ákveðið í samráði við lækni.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
  • einhver í ættinni sé með sykursýki, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með háan blóðþrýsting, hjarta- eða æðasjúkdóm
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mígreni
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú sért með rauða úlfa (lupus)
  • þú sért með sykursýki
  • þú hafir fengið krampa eða sért með flogaveiki
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með blæðingar frá fæðingarvegi af óþekktum ástæðum
Lyfið á ekki að nota á meðgöngu. Lyfið á ekki að nota samhliða brjóstagjöf. Lyfið er ekki ætlað börnum. Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum eldri en 65 ára. Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni. Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Leyft við æfingar og í keppni.

Aukaverkanir

Algengasta aukaverkunin eru blæðingatruflanir, s.s. milliblæðingar og blettablæðingar og koma fram hjá um 10-30% kvenna sem taka lyfið. Þetta er algengast á fyrstu mánuðum meðferðar.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Bakverkir
Blæðingatruflanir
Eymsli í brjóstum, brjóstastækkun
Höfuðverkur, ógleði
Kviðverkir
Sinadráttur
Útferð
Þunglyndi
Þyngdaraukning, bjúgur
Breytingar í brjóstum
Verkur í fótum, nára eða fyrir brjósti
Gula
Háþrýstingur
Útbrot og mikill kláði

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Milliverkanir

Lyf sem auka áhrif lifrarensíma, t.d. sum flogaveikilyf eða sýklalyf geta dregið úr virkni lyfsins. Jóhannesarjurt og ginseng geta haft áhrif á virkni lyfsins.

Má ekki nota með

Anastrozol Actavis, Anastrozole Bluefish, Arimidex, Aromasin, Astrozol, Exemestan Actavis, Femar, Letromal, Letrozol Actavis, Letrozole Bluefish

Getur haft áhrif á

Advagraf, Amoksiklav, Amoxicillin Mylan, Apidra, Augmentin, Celebra, Ciprofloxacin Portfarma, Circadin, Crestor, Dalacin, Decortin H, Decutan, Deltison, Dépakine (afskráð apr. 2012), Doxycyclin Actavis, Doxylin, Ery-Max, Eusaprim, Fenantoin Recip, Fenemal Recip, Flagyl, Flemoxin Solutab, Furadantin, Haiprex, Heracillin, Ísótretínóín Portfarma, Kåvepenin, Kåvepenin Frukt, Keflex, Klacid, Kóvar, Lamictal, Lamotrin, Metronidazol Actavis, Neotigason, Oracea, Orfiril, Orfiril Retard, Prednisolone Actavis, Primazol (afskráð maí 2011), Prograf, Rimactan, Rivotril, Sandimmun Neoral, Selegilin Mylan, Selexid, Síprox, Staklox, Tamoxifen Mylan, Tarivid (afskráð júl. 2011), Tegretol, Tegretol retard, Topimax, Topiramat Actavis, Topiramate Portfarma, Trileptal, Trimetoprim Meda, Trimezol, Vancocin, Vancomycin Xellia, Zinnat, Zitromax, Zomig, Zomig Nasal, Zomig Rapimelt

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.