Act Hib

Haemophilus influenzae stofn B Bóluefni Aventis Pasteur MSD Lyfseðilsskylt 0

Haemophilus influenzae b (Hib) er baktería sem getur orsakað alvarlega sjúkdóma, svo sem heilahimnubólgu, barkabólgu, lungnabólgu, blóðsýkingu og liðbólgur. Bólusetningar gegn Hib hófust hér á landi árið 1989 en áður fyrr sýktust u.þ.b. 10 börn á ári af heilahimnubólgu af völdum Hib. Act Hib inniheldur hreinsað brot úr bakteríunni og vekur upp mótefnasvörun í líkamanum og kemur þannig í veg fyrir að fólk veikist af Hib.

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Notkun á lyfi

Stungulyf í vöðva eða undir húð. Lyfið þarf að notast innan 1 klst. eftir blöndun. Börn fá venjulega 3 skammta; við 3-5, 6 og 14-18 mánaða aldur. Full verkun næst strax eftir að búið er að gefa síðasta skammtinn. Fleiri ár. Engin. Geymist í lokuðum umbúðum á köldum stað (2-8°C) þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lyfið má ekki frjósa. Ef seinni skammtar gleymast ber að gefa skammtinn um leið og munað er eftir því þar sem möguleiki er að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefnum. Ekki má gefa tvo skammta í einu. Ekki er talið æskilegt að hætta gjöf lyfsins fyrr en allir skammtar hafa verið gefnir þar sem líkur eru á að ekki hafi myndast nægilegt magn af mótefni. Á ekki við. Lyfið er ekki ætlað til langtímanotkunar.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með hita eða sýkingu
  • þú hafir áður fengið alvarlegar aukaverkanir af bólusetningu
  • þú sért með skert ónæmiskerfi
Á ekki við. Á ekki við. Lyfið er eingöngu ætlað börnum á aldrinum 2 mánaða til 5 ára. Lyfið er eingöngu ætlað börnum. Á ekki við. Á ekki við. Adrenalín stungulyf verður að vera til staðar ef til bráðaofnæmis eða annarra ofnæmisviðbragða kemur. Bóluefnið má ekki gefa í æð. Leyft við æfingar og í keppni.

Aukaverkanir

Aukaverkanir eru venjulega mildar og standa yfir í stuttan tíma.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Grátur og pirringur
Hiti
Verkir, roði og bólga á stungustað
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Uppköst, niðurgangur

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Milliverkanir

Bóluefnið má gefa samtímis bóluefni við stífkrampa, barnaveiki, kíghósta og lömunarveiki, en á annan stungustað. Þeir sem eru á ónæmisbælandi lyfjameðferð geta fengið minni mótefnasvörun.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.