Acetylcystein Mylan

Acetýlcýstein Hósta- og kveflyf Mylan Lyfseðilsskylt E

Acetýlcýstein minnkar seigju slíms og það verður auðveldara að hósta slíminu upp úr lungum. Lyfið er notað við langvinnri berkjubólgu. Verkunarmáti er ekki þekktur þegar lyfið er gefið til inntöku. Lyfið er líka notað til meðferðar á parasetamóleitrunum.

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Notkun á lyfi

Freyðitöflur til inntöku. Ein tafla (200 mg) leyst í ½-1 glasi af vatni 2-3svar á dag. Innan við 1 klst. 8-12 klst. Engin. Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Einkenni sjúkdómsins geta aftur komið fram þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni. Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að valda óþægindum. Ef teknir eru stórir skammtar eða vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni. Ekki hefur verið sýnt fram á verkun umfram 6 mánaða notkun.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með astma
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins á meðgöngu. Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk. Engar ákveðnar skammtastærðir eru gefnar upp fyrir börn. Venjulegar skammtastærðir. Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni. Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Leyft við æfingar og í keppni.

Aukaverkanir

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Ógleði, niðurgangur
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Berkjukrampi

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.