Accolate (afskráð feb. 2011)

Zafírlúkast Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi Astra Zeneca Lyfseðilsskylt B

Zafírlúkast, virka efnið í Accolate, vinnur gegn einkennum astma, eða bjúgmyndun í öndunarfærum og þrengingu loftvega. Það dregur úr áhrifum levkótríena sem eru boðefni í líkamanum og valda mörgum einkennum astma þegar þau eru of virk, t.d. vegna ofnæmis. Zafírlúkast hefur einnig bólgueyðandi áhrif. Zafírlúkast gagnast við hefðbundnum astma, svo og áreynsluastma og astma af völdum ofnæmis. Það getur einfaldað viðhaldsmeðferð þegar innúðalyf henta illa sjúklingi, og líka sem viðbótarmeðferð ef önnur astmalyf hafa ekki gefið fullnægjandi árangur. Lyfið er fremur seinvirkt og er því ekki notað við bráðum astmaköstum.

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.

Notkun á lyfi

Töflur til inntöku. 20-40 mg í senn 2svar á dag, helst allaf á sama tíma dags. Lyfið á að taka á fastandi maga minnst 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir mat. Töflurnar gleypist með vatnsglasi. Áhrif á astmaeinkenni koma fram á 2-6 vikum eftir reglulega inntöku. Zafírlúkast virkar í 12 klst. eftir að lyfjagjöf er hætt en bólgurnar koma smám saman aftur sé sjúkdómurinn til staðar og töku lyfsins hætt. Engin. Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Einkenni astma geta komið fram aftur þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni. Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni. Án vandkvæða.

Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
  • þú takir einhver önnur lyf
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið berst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára. Venjulegar skammtastærðir. Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni. Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins. Leyft við æfingar og í keppni.

Aukaverkanir

Algengustu aukaverkanir lyfsins eru meltingaróþægindi og höfuðverkur.

Aukaverkun Tíðni Leitið læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng
> 1%
Sjaldgæf
< 1%
Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum
Höfuðverkur, svefnleysi
Meltingaróþægindi
Slappleiki
Útbrot, kláði, bjúgur og öndunarerfiðleikar
Gula

Hafðu samband við lækni ef önnur einkenni koma fram sem gætu tengst lyfinu.

Milliverkanir

Getur haft áhrif á

Alka-Seltzer (afskráð jan. 2012), Aspirin Actavis, Ery-Max, Hjartamagnýl, Kóvar, Treo

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.