Lyfjaform:
Töflur til inntöku.
20-40 mg í senn 2svar á dag, helst allaf á sama tíma dags. Lyfið á að taka á fastandi maga minnst 1 klst. fyrir eða 2 klst. eftir mat. Töflurnar gleypist með vatnsglasi.
Áhrif á astmaeinkenni koma fram á 2-6 vikum eftir reglulega inntöku.
Zafírlúkast virkar í 12 klst. eftir að lyfjagjöf er hætt en bólgurnar koma smám saman aftur sé sjúkdómurinn til staðar og töku lyfsins hætt.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.
Einkenni astma geta komið fram aftur þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni.
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skaltu hafa samband við lækni.
Án vandkvæða.