Aberela
Tretínóín
Lyf við bólum
Janssen-Cilag
Lyfseðilsskylt
0
Aberela er notað útvortis við þrymlabólum (acne vulgaris). Virka efnið tretínóín er efnafræðilega skylt A-vítamíni, en áhrif þess eru að mörgu leyti frábrugðin áhrifum A-vítamíns. Það hefur áhrif á afritun erfðaefnis í húðfrumum og eykur frumuskiptingu í yfirhúð. Þetta tvennt er talið minnka samloðun húðfrumna í ystu lögum húðarinnar, en við það verður auðveldara að hreinsa húðina og þrymlar myndast síður í henni. Tretínóín getur gagnast við mörgum öðrum húðvandamálum. Það hefur þó ekki verið rannsakað til fullnustu og sem stendur er það eingöngu notað við þrymlabólum.
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu
Lyfjastofnunar. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.
Notkun á lyfi
Útvortis krem.
Lyfið er borið á hreina og þurra húð í þunnu lagi einu sinni á dag.
2-3 vikur. Í upphafi meðferðar geta einkenni versnað.
Lyfið sjálft hefur áhrif í 5 daga eftir að notkun þess hættir. Bólur hverfa oft endanlega þegar búið er að ná þeim niður með lyfinu.
Engin.
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hætta má notkun lyfsins þegar einkenni eru ekki lengur til staðar.
Stórir skammtar geta valdið ertingu í húð og óþægindum. Skolaðu lyfið af húðinni. Ef þessi einkenni eru mikil skaltu hafa samband við lækni.
Án vandkvæða.
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort:
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með exem eða aðra húðsjúkdóma
- þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
- þú sért með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum
- þú takir einhver önnur lyf
- þú sért með húðsýkingu
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum. Lyfið á aldrei að nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu.
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.
Lyfið er ekki ætlað ungum börnum.
Lyfið er venjulega ekki notað.
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Húðin verður mjög viðkvæm fyrir sólarljósi meðan lyfið er notað. Varastu að lyfið berist í augu, nef og munn eða á opin sár og sólbrennda húð.
Leyft við æfingar og í keppni.
Milliverkanir
Tretínóín veldur frekar ertingu ef það er notað með öðrum útvortis húðlyfjum.
Má ekki nota með
Neotigason, Regaine (afskráð nóv. 2011)
Getur haft áhrif á
Duac
© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.